24% fjárfestinga Reykjavíkurborgar eru grænar

Umhverfi Fjármál

""

Skýrsla starfshóps um grænt hagkerfi í Reykjavík var kynnt á síðasta fundi borgarráðs.  Í henni kemur fram að flokka má 24% af fjárfestingum borgarinnar sem grænar og að um 2,5% af öllu vinnuafli á höfuðborgarsvæðinu sé í grænum atvinnugreinum.

Borgarstjóri setti starfshópinn á laggirnar 1. október 2014 og var honum falið að kortleggja grænan hagvöxt hjá Reykjavíkurborg og leggja til leiðir um hvernig styðja megi við grænan vöxt  og gera hann sýnilegan. Undanfarin ár hefur Reykjavíkurborg unnið markvisst að framgangi umhverfismála í borginni, innleitt vistvænan rekstur og lagt áherslu á grænar fjárfestingar sem hafa bætt umhverfi og lífsgæði borgarbúa.

Má nefna hjólareiðaáætlun Reykjavíkurborgar í þessu samhengi, svo og Aðalskipulag Reykjavíkurborgar 2010 – 2030 þar sem kveðið er á um friðun grænna og opinna svæða, þéttingu byggðar, styrkingu almenningssamgangna, vistvænar lausnir í sorphirðu og kröfur um visthæfar lausnir við nýbyggingar.

Í skýrslunni segir: „Græna hagkerfið tengir saman hagvöxt, atvinnulíf og umhverfi. Grænn vöxtur borga stuðlar þannig að að bættu umhverfi og lífsgæðum borgarbúa samhliða því sem efnahagslífið dafnar. Áhersla Reykjavíkurborgar á grænan hagvöxt er í takt við stefnu borgarinnar um að efla atvinnulíf, samfélag og umhverfi.“

Starfshópurinn skoðaði m.a. hvernig megi auka notkun vistvænna orkugjafa í borginni, hvernig auka megi samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um grænan vöxt og hvernig auka megi hlutfall vistvænna útboða með endurskoðun á innkaupaferli borgarinnar. Starfshópurinn sér einnig tækifæri í orkuskiptum í samgöngum, skyndibílum og skyndihjólaleigu.

Þá kemur fram að fjárhagslegt umfang fjárfestinga Reykjavíkurborgar er áætlað 7,3 milljarðar að meðaltali næstu fimm árin og eru grænar fjárfestingar þar 1,8 milljarðar, eða 24%. Undir grænar fjárfestingar falla m.a. fjárfesting í opnum svæðum, viðhald gönguleiða og úrbætur á forgangsleiðum strætisvagna, endurnýjun sorpíláta og fleira.

Starfshópinn skipuðu: Ellý Katrín Guðmundsdóttir borgarritari sem var formaður, Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir, fjármálaskrifstofu Þórhildur Ósk Halldórsdóttir, tölfræði og greiningu Óli Örn Eiríksson, skrifstofu eigna og atvinnuþróunar Hrönn Hrafnsdóttir, umhverfis- og skipulagssviði.

Grænn hagvöxtur í Reykjavík skýrsla