Hvort áfengi verði á nýja nammibarnum er spurning sem varpað er fram á fyrsta fundi vetrarins hjá Náum áttum sem haldin verður á Grand hótel miðvikudaginn 1. október kl. 08.15 - 10.00.
Fundurinn veltir upp þeirri spurningu hvort hagsmunum barna sé gætt í nýju frumvarpi um sölu áfengis í matvöruverslunum.
Náum áttum er forvarna- og fræðsluhópur um velferð barna og unglinga.
Þar munu halda erindi;
- Þóra Jónsdóttir, lögfræðingur hjá Barnaheillum, sem fjallar um Barnsáttmála Sameinuðu þjóðanna;
- Hildigunnur Ólafsdóttir, afbrotafræðingur, sem fjallar um niðurstöður rannsókna um aukið aðgengi að áfengi;
- Árni Guðmundsson, lektor í tómstundafræðum við HÍ, sem fjallar um markaðsáhrif á börn.
Fundarstjóri verður Rafn Jónsson, og mun hann stjórna umræðum eftir að erindi hafa verið flutt. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir en nauðsynlegt er að fólk skrái þátttöku sína á heimasíðunni www.naumattum.is. Þátttökugjald er 2100 krónur en innifalið í því er morgunverður. Fundirnir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir.
Auglýsing fyrir morgunverðarfund Náum áttum 1. október 2014.