Félag íslenskra bifreiðareigenda hefur veitt Hólabrekkuskóla viðurkenningu fyrir vel skilgreindar og vel merktar gangbrautir við skólann.
Hólmfríður G. Guðjónsdóttir skólastjóri tók við viðurkenningarskildinum - Gangbrautin 2014 fyrir hönd Hólabrekkuskóla við hátíðlega athöfn þar sem viðstaddir voru nemendur 1. og 2. bekkjar.
Þessi viðurkenning er liður í gangbrautaverkefni FÍB sem hófst sl. vetur og mun halda áfram næstu árin. Það miðar að því að kanna hversu góðar og öruggar gönguleiðir skólabarna eru og hvar er þörf á úrbótum. FÍB hyggst kanna ástand þessara mála um allt land árlega og þrýsta á um úrbætur þar sem úrbóta er þörf en veita jafnframt viðurkenningu fyrir það sem vel er gert. Hólabrekkuskóli er fyrstur til að hljóta þessa viðurkenningu FÍB.
Mikill fjöldi foreldra, aðstandenda og velunnara barna um allt land hefur frá því verkefnið hófst tekið virkan þátt í því með félaginu og sent m.a. inn myndir af gönguleiðum skólabarna við skóla og við umferðargötur og farið yfir þær. Sérfræðingar félagsins, þeirra á meðal tæknistjóri Euro RAP - öryggisrýni íslenskra vega, umboðsmenn félagsins og starfsmenn skoða fjölmarga þessara staða með eigin augum auk þess að fara yfir þau gögn sem berast. Starfsmenn verkefnisins hafa síðan samband við stjórnendur skólanna, sem og skipulags- og umferðaryfirvöld og þeim bent á það sem til fyrirmyndar er og það sem betur mætti fara. Á því ári sem liðið er frá því átakið hófst er ljóst að átakið hefur leitt til fjölmargra endurbóta víða sem stuðla að bættu öryggi barnanna á leið þeirra í og úr skóla.