Ánægja og líðan unglinga í félagsmiðstöðvum borgarinnar mælist almennt góð og yfir 90% barna og unglinga telja sig örugg í starfinu. Ánægja með samskipti við starfsfólk er mikil og telja unglingarnir það vera góðar fyrirmyndir. Þetta kemur fram í nýrri könnun á vegum skóla- og frístundasviðs.
Opin hús og böll eru vinsælustu viðburðirnir í félagsmiðstöðvarstarfinu ef marka má svör hátt í átta hundruð unglinga sem svöruðu könnuninni. Um þriðjungur svarenda er virkur í að skipuleggja félagsmiðstöðvarstarfið og mætir á fundi í ráðum og nefndum og láta stelpurnar þar meira að sér kveða. Að mati unglinganna er hlustað á hugmyndir þeirra og flestum þeirra hrint í framkvæmd í félagsmiðstöðinni enda töldu 88% að unglingar réðu miklu um það sem þar væri gert.
Yfirgnæfandi meirihluti þeirra barna og unglinga sem svöruðu könnuninni, eða 94%, töldu mikilvægt að hafa félagsmiðstöð í sínu hverfi. Þó mislangt sé fyrir unglinga að komast í félagsmiðstöðina eftir hverfum sýnir könnunin að 70% þeirra voru innan við 10 mínútur á leiðinni þangað frá heimili sínu. Þannig gátu 90% unglinga í Breiðholti gengið í félagsmiðstöðina á innan við 10 mínútum en 45% unglinga í Vesturbæ. Nokkur kynjamunur kom fram þegar spurt var um öryggi á gönguleiðinni, stelpur upplifðu sig óöruggari en strákarnir á leiðinni í og heim úr félagsmiðstöðinni.
Langalgengasta ástæðan sem gefin var upp fyrir því að fara í félagsmiðstöðina var sú að unglingar vilja hitta aðra unglinga og vini sína og er þar enginn munur eftir kynjum eða aldri. Flestir telja félagsmiðstöðvastarfið fjölbreytt og 90% unglinganna finnst framboð á viðfangsefnum vera jafnt gott fyrir bæði kynin.
Sjá könnunina.