Undirritun samnings um Menntun núna verkefnið

Velferð Skóli og frístund

""

Jón Gnarr, borgarstjóri og Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra skrifuðu í dag undir samstarfssamning um tilraunaverkefnið Menntun núna í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi

Samningurinn var undirritaður í dag, föstudaginn 14. mars, í menningarmiðstöðinni Gerðubergi sem er jafnframt vettvangur verkefnisins. Menntun núna er tilraunaverkefni menntamálaráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og aðila vinnumarkaðarins.  Meginmarkmið verkefnisins er að auðvelda fólki á aldrinum 18-54 ára, sem ekki hefur lokið námi á framhaldsskólastigi, að hefja nám að nýju og að styrkja aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi. 

Verkefnið er staðsett í Gerðubergi, þar sem ætlunin er m.a. að bjóða upp á:

  • Ráðgjöf: Náms- og starfsráðgjöf, fjárhags- og félagsráðgjöf og ráðgjöf varðandi stöðupróf í íslensku og umsókn um ríkisborgararétt.
  • Nám og námsstuðning: Fræðsla á fimmtudögum. Námsbrautir, íslenskunám og samfélagsfræðsla frá Mími.  Námshópar og stuðningskennsla fyrir þátttakendur.
  • Raunfærnimat og mat á námi og starfsreynslu til styttingar framhaldsskólanáms.

Verkefnið mun njóta góðs af þeirri aðstöðu, félags- og menningarstarfi sem er til staðar í Gerðubergi auk þess að byggja á þekkingu og reynslu samstarfsaðila í verkefnisstjórn.

Menntamálaráðneytið ásamt átaksverkefni stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins „Nám er vinnandi vegur“ styrkja verkefnið. Undirbúningur Menntun núna hófst í september 2013  og verkefninu lýkur í ágúst 2015. Reykjavíkurborg leggur til aðstöðu og vinnuframlag starfsmanna sinna og samstarfsaðilar leggja til námsskeið og ráðgjöf.

Nánari upplýsingar má finna á http://menntun-nuna.is/