Umsóknir um styrki úr Kirkjubyggingarsjóði

Stjórnsýsla

""

Hér með auglýsir Kirkjubyggingarsjóður Reykjavíkurborgar eftir umsóknum um styrki vegna ársins 2014. Sjóðnum er ætlað að veita fjármunum til að byggja kirkjur og safnaðarheimili

í Reykjavík, en einnig má styrkja endurbætur og meiriháttar viðhald á kirkjum í borginni.

Umsóknir um styrki sendist Ráðhúsi Reykjavíkur merktar „Kirkjubyggingarsjóður“ fyrir 4. apríl nk.

Þau skilyrði eru sett fyrir því að umsókn sé tekin til greina að henni fylgi greinargóðar upplýsingar um fyrirhugaðar framkvæmdir, ársreikningur 2013, ráðstöfun fyrri styrkja sé um þá að ræða, svo og um fjármögnun verksins að öðru leyti.

Frekari upplýsingar fást hjá stjórn sjóðsins:

Karl Sigurðsson: karl.sigurdsson@reykjavik.is

Gísli Jónasson: gisli.jonasson@kirkjan.is

Jóhannes Pálmason: palmason@simnet.is