Tungumál í tösku

Velferð Skóli og frístund

""

Í leikskólanum Ösp í Breiðholti er skemmtilegt verkefni í gangi sem miðar að því að efla orðaforða og málskilning barnanna á sínu móðurmáli, en meirihluti þeirra er af erlendu bergi brotinn. 

Verkefnið heitir Tungumálataska og á skólinn 7 töskur sem fara á víxl heim með börnunum í nokkra daga. Í þeim eru skemmtilegar sögubækur á einföldu máli, orðabækur, spil, myndir og annar efniviður sem notaður er í skólanum til að örva málskilning. Í töskunum eru einnig hagnýtar leiðbeiningar fyrir foreldra sem þýddar hafa verið á átta tungumál; íslensku, pólsku, ensku, tælensku, arabísku, rússnesku, nepölsku og tagalog.

Hugmyndin á bak við verkefnið er að fá foreldra til að vinna með málnotkun heima fyrir þannig að börnin noti móðurmál sitt samhliða íslenskunni. Efniviðurinn er að mestu á íslensku til að foreldrar læri líka það tungumál sem börnin eru að læra og að þeir eflist og öðlist sama málskilning og barnið. Þá er einnig hugað að myndrænni framsetningu þannig að foreldrar þurfi ekki endilega að lesa en geti hæglega rætt við barnið um efnið sem er í töskunum.

Dæmi um leiðbeiningar sem fylgja hverri tösku:

•          Ef þú getur lesið á íslensku þá skaltu þýða söguna og segja barninu á þínu tungumáli.

•          Segðu frá myndunum og hvað er að gerast á þeim.

•          Spurðu spurninga um myndirnar.

•          Útskýrðu hvað hlutirnir þýða á þínu tungumáli og spurðu barnið hvað þeir þýða á íslensku.

•          Leikir eru góðir fyrir orðaforðann, til að læra tölur, liti og hugtök eins og upp/niður,   undir/yfir og fl.

•          Njótið þess að hafa gaman saman... börn njóta þess að hlægja og læra með fullorðnum.