Tímamót á Hverfisgötu

Framkvæmdir Samgöngur

""

Hverfisgatan verður í dag opin á ný fyrir bílaumferð, en áfram verður unnið við lokafrágang götunnar alla næstu viku. Verslunarmenn eru glaðir með þessi tímamót og verður verklokum fagnað á laugardag eftir viku.  

Í morgun voru lagnir myndaðar til að ganga úr skugga um að ekkert hefði gengið úr skorðum við jarðvegsþjöppun og einnig var sandur hreinsaður úr niðurföllum. Umferðartálmar verða fjarlægðir, en vinnusvæðamerkingar verða þó áfram uppi og hraðatakmörk eru 20 km/klst. 

Næsti áfangi frá Vitastíg að Snorrabraut

Í næsta áfanga verður Hverfisgatan frá Vitasstíg að Snorrabraut endurgerð.  Allt yfirborð götu og gangstétta verður endurnýjað, ásamt þeim lögnum sem komnar eru á tíma. Snjóbræðsla verður sett í upphækkuð gatnamót og göngu- og hjólaleiðir. Markmið framkvæmdanna er að fegra götumyndina og verður útlit götunnar með svipuðu sniði og fyrir neðan Vitastíg.

Búið er að kynna fyrirhugaðar framkvæmdir í bréfi til íbúa.  Áætlað er að hefja vinnu í mars og að verklok verði í ágúst. Verktími tekur mið af reynslu framkvæmda við þann kafla sem nú er verið að ljúka við milli Klapparstígs og Vitastígs.

Fljótlega í mars er fyrirhugað að boða til opins kynningarfundar um þessar framkvæmdir og kynna þá endanlegt fyrirkomulag og dagsetningar.  Tilboð voru opnuð í vikunni og eru þau til skoðunar hjá innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar.