Hver grunnskóli tilnefnir nemanda til verðlaunanna á þar til gert eyðublað og þurfa þær að berast fyrir 15. maí nk.
Formaður skóla- og frístundaráðs, Oddný Sturludóttir, afhendir nemendaverðlaunin og viðurkenningar fyrir skólaárið 2013 – 2014 við hátíðlega athöfn í Fellaskóla 26. maí n.k. frá 17:00 – 18:30.
Markmið nemendaverðlaunanna er að hvetja nemendur til að leggja sig enn betur fram í námi, félagsstarfi og skapandi starfi.
Hver grunnskóli tilnefnir einn nemanda og er hvatt til þess að starfsmenn skóla, foreldrafélag og skólaráð svo og nemendafélag taki þátt í vali innan skólans.
Nemendaverðlaunin eru ekki bundin við aldur, þannig kemur nemandi úr yngri bekkjardeildum jafn vel til greina og sá sem eldri er. Þeir nemendur sem tilnefndir eru frá skólunum fá allir bókagjöf og viðurkenningarskjal skóla- og frístundaráðs.
Nemendaverðlaunin eru m.a. veitt fyrir:
• Góðan námsárangur, almennt eða í tiltekinni grein.
• Góðar framfarir í námi, almennt eða í tiltekinni grein.
• Virkni í félagsstarfi, að vera góð fyrirmynd, að sýna frumkvæði eða leiðtogahæfileika.
• Frábæra frammistöðu í íþróttum eða listum, s.s. skák, boltaíþróttum, frjálsum íþróttum, dansi, myndlist, tónlist.
• Listsköpun eða tjáningu í skólastarfi, s.s. í myndlist, tónlist, leiklist, handmennt, dansi, upplestri.
• Félagslega færni, samskiptahæfni og sérstakt framlag til að bæta eða auðga bekkjaranda/skólaanda.
• Nýsköpun og/eða hönnun, s.s. smíði, hannyrðir, tæknimennt.
Þegar hver skóli hefur valið hvaða nemandi fær verðlaunin eru upplýsingar um hann sendar á meðfylgjandi eyðublaði fyrir 15. maí n.k.
Tilnefningar skulu berast til skóla-og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12 - 14, 105 Reykjavík. Netfang: sfs@reykjavik.is
Eyðublað fyrir tilnefningu.