Til hamingju með afmælið Yoko Ono!

Mannlíf Menning og listir

""

Listakonan Yoko Ono á afmæli þann 18. febrúar og hefur Reykjavíkurborg ákveðið að heiðra hana með því að tendra Friðarsúluna á afmælisdegi hennar. 



Yoko Ono hefur um langt árabil nýtt listina til þess að vekja fólk til umhugsunar um frið, mannréttindi og náttúruvernd.  Þegar hún kaus að staðsetja Friðarsúluna í Viðey vakti hún heimsathygli á Reykjavík og Íslandi sem friðelskandi þjóð. Tendrun súlunnar í október ár hvert nýtur mikilla vinsælda bæði meðal Íslendinga og erlendra ferðamanna sem margir hverjir koma um langan veg til þess að vera viðstaddir viðburðinn. Í fyrra var slegið met í fjölda þátttakenda þegar 1.800 manns sigldu yfir Sundið í boði Yoko Ono en þessi viðburður mun að öllum líkindum stækka ár frá ári. Það er því vel við hæfi að tendra ljósið í Viðey á afmælisdegi listakonunnar um leið og Reykjavíkurborg óskar henni til hamingju með 81. árs afmælið. 

Friðarsúlan verður tendruð kl. 18:00 þriðjudaginn 18. febrúar og logar til kl. 10:00 miðvikudaginn 19. febrúar.

Boðið verður upp á Friðarsúluferð kl. 20:00. Siglt verður frá gömlu höfninni í miðbæ Reykjavíkur. Bókanir og frekari upplýsingar má nálgast í síma 533 5055 eða með því að senda tölvupóst á videy@elding.is

Ljós Friðarsúlunnar sést vel af Höfuðborgarsvæðinu. Hana má einnig sjá í beinni útsendingu á vefsíðunni imaginepeacetower.com

IN ENGLISH

Happy birthday Yoko Ono!

The City of Reykjavík will light up the IMAGINE PEACE TOWER on Ms. Yoko Ono’s birthday on 18 February. The artist has through the years used her art to get people to think about the importance of love, peace, human rights and environmental protection. By choosing Viðey island as the home of the IMAGINE PEACE TOWER she has drawn attention to Reykjavik and Iceland as a peace-loving nation.

The IMAGINE PEACE TOWER will be lit at 6 pm on 18 February until 10 am on 19 February local Icelandic time as a tribute to Ms. Ono and to wish her a happy birthday.

On that occasion Elding offers a gui¬ded even¬ing tour; the Imagine Peace Tour on 18 February at 20:00. Reservations and more information by phone +354 533 5055 and e-mail videy@elding.is

Live feed from the Imagine Peace Tower is availa¬ble on imaginepeacetower.com