Þín samsetta sjón opnuð í Hafnarhúsi laugard. 24. maí kl. 16

Mannlíf Menning og listir

""

Á sýningunni Þín samsetta sjón gefur að líta úrvalsverk úr safneign Listasafns Reykjavíkur frá árunum 1970-2010 eftir um 50 listamenn. Margir af þekktustu starfandi listamönnum landsins eiga verk á sýningunni, m.a. Ólafur Elíasson en titill sýningarinnar er sóttur í verk eftir hann, Ragnar Kjartansson, Gjörningaklúbburinn, Gabríela Friðriksdóttir og Hreinn Friðfinnsson.

Verkin á sýningunni eru fjölbreytt, miðlarnir margir og viðfangsefnin ólík. Hér má sjá staðbundnar innsetningar, minimalíska skúlptúra, hugmyndalist í ýmsum miðlum, gjörningatengda vídeólist og verk byggð á rannsóknum. Viðfangsefnin eru allt frá sjálfhverfri íhugun um eðli listarinnar til þjóðfélagsádeilu og afbyggingu viðtekinna hugmynda um „Norðrið“ og íslenskan menningararf.



Upphaf íslenskrar samtímalistar má rekja til uppreisnar  hinnar svokölluðu SÚM-kynslóðar gegn þeim miklu áhrifum sem abstrakt málarar höfðu á íslenska list snemma á sjöunda áratugnum. Þessi kynslóð kynnti nýjar hugmyndir í listmenntun og myndaði ný tengsl erlendis. Þetta varð til þess að næstu kynslóðir íslenskra listamanna leituðu fanga víða og hafa þeir listamenn sem eiga verk á sýningunni sótt sér framhaldsmenntun í ekki færri en tíu löndum Evrópu og Norður-Ameríku. Þótt íslenskir listamenn hafi flutt margvíslegar hugmyndir heim með sér eftir nám erlendis hafa hugmyndirnar og efnistökin þroskast enn frekar í nýju umhverfi. Sú gerjun sem hefur átt sér stað og orðræðan sem hefur skapast hér á landi síðastliðna hálfa öld hefur sett svip á íslenska myndlist en fjölbreytnin er þó staðreynd eins og þessari sýningu er ætlað að draga fram.

Öll verkin á sýningunni eru úr safneign Listasafns Reykjavíkur en í heild teljast um sautján þúsund verk til hennar. Safneignin samanstendur af almennri listaverkaeign eftir innlenda og erlenda listamenn, Errósafni, Kjarvalssafni og Ásmundarsafni. Þessi söfn hafa ýmist orðið til fyrir stórmannlegar gjafir listamanna og einstaklinga eða kaup á listaverkum.

Sýningarstjóri: Hafþór Yngvason.