Vetrarhátíð í Reykjavík 2014 fer fram 6. - 15. febrúar nk. Á lokadegi hátíðarinnar, laugardaginn 15. febrúar, fer fram svokölluð sundlauganótt. Breiðholtslaug tekur að sjálfsögðu þátt í viðburðinum.
Margt býr í gufunni. Hljóðheimur radda óma. Ljóstýra berst frá annesjum. Gufur stíga upp úr pottum og laugum. Tónar berast úr fjarska. Hugmyndir og heimar ganga á milli manna. Eldar loga í kyndlum á bökkum!
Opið verður í Breiðholtslaug til miðnættis. Samflot kl. 22:30 - 23:30, slökun og stjörnuskoðun. Allir velkomnir!