Mánudaginn 12. maí verður haldið fróðlegt og skemmtilegt umræðukvöld fyrir foreldra sem eiga börn í 5.-10. bekk í Árbæ, Norðlingaholti og Grafarholti. Fundurinn verður í Selásskóla og hefst kl. 19:30.
Umræðukvöldið ber yfirskriftina Sumarið er tíminn og munu fagaðilar frá Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts, starfsmenn Frístundamiðstöðvarinnar Ársels og fleiri sem koma að uppeldi barna og unglinga í hverfunum stofna til samtals við foreldra.
Tvö örstutt erindi verða haldin um málefni unglinga og mun Magnús verkefnastjóri í Holtinu í öðru þeirra fjalla um netnotkun unglinga. Þar mun hann koma inn á samskiptamiðla sem unglingar nota og kynna fyrir foreldrum kosti sem og hættur samhliða notkuninni. Við hvetjum alla til að koma og taka virkan þátt í þessu umræðukvöldi fyrir foreldra!
Sjá dagskrá.