Styrkurinn í áheitagöngu í Þórsmörk

Skóli og frístund Íþróttir og útivist

""

Styrkurinn er samstarfsverkefni frístundamiðstöðvarinnar Gufunesbæjar, pólfarans Vilborgar Örnu og Vinnuskólans, en söfnunin miðar að því að styrkja starfsemi Rauðakrossins í Malavi.  

Eitt af meginmarkmiðum  Styrksins er að safna fjármagni fyrir vatnsbrunni í Malaví með áheitasöfnun sem hefur hlotið nafnið „Vatn í brunn, vatn í munn“. Hópurinn fór í þeim tilgangi í gönguferð frá Álftavatni og niður í Þórsmörk og er nú á heimleið eftir vel heppnaða ferð. Veðrið lék við hópinn á göngunni og þrátt fyrir þreytta fætur og nokkrar blöðrur var haldið fast í jákvæðnina og allir voru duglegir að hvetja félagana áfram í áfangastað. Síðast þegar fréttist var gönguhópurinn kominn í Langadal og á leið til bæjar. 

Þorsteinn V. Einarsson, frístundamiðstöðinni Gufunesbæ, og Vilborg Arna Gissurardóttir eru í forsvari fyrir hópinn. Auk þeirra fór Inga Lára Björnsdóttir, frístundamiðstöðinni Kringlumýri, með hópnum í gönguferðina.

Styrktarreikningur Styrksins er á vegum Rauða krossins: 0342-26-555, kt. 530269-2649 og eru allir hvattir til að leggja þessu góða málefni lið.