Styrkjum úthlutað til félagsstarfs í Breiðholti

Velferð Mannlíf

""

Föstudaginn 19. desember sl. var styrkjum úthlutað í fyrsta sinn úr sérstökum sjóði á vegum félagsstarfs borgarinnar í Breiðholti, Heita pottinum. Tvö verkefni fengu styrk að upphæð kr. 200.000 hvort. Æfingahópur eldri íþróttaiðkenda sem æfir í ÍR-heimilinu tvisvar í viku fékk stuðning til kaupa á æfingaáhöldum og verkefnið Gæfuspor var stutt til áframhaldandi námskeiðshalds til að efla þátttöku og virkni kvenna í félagslegu starfi, meðal annars með því að bjóða upp á hugleiðsluhóp. 

Styrkirnir voru afhentir við hátíðlega athöfn í félagsmiðstöðinni Árskógum. Í úthlutunarnefnd sátu formaður Hverfisráðs Breiðholts, verkefnisstjóri félagsstarfs í Breiðholti og fulltrúar úr notendaráðum félagsmiðstöðvanna í Árskógum og Gerðubergi. Markmið Heita pottsins er að auka þátttöku og virkni, auka hlut íþróttaiðkunar og hreyfingar, efla fræðslu og miðlun upplýsinga  og rækta félagsauð og auka fjölbreytni í opnu og sjálfbæru félagsstarfi í Breiðholti.

Styrkhöfum er óskað til hamingju með góð verkefni sem munu án efa eflast og dafna á komandi misserum.