Mjög forvitnileg þriðjudagsganga verður annað kvöld í Viðey kl. 19.30 sem fjallar um strand kanadíska tundurspillisins Skeena og hetjulega framgöngu íslensks skipstjóra sem stjórnaði björgun á 198 mönnum úr áhöfninni. Á þeim tíma er slysið varð hvíldi mikil leynd yfir því en það var hernaðarleyndarmál. Það er dóttir skipstjórans, Guðrún Einarsdóttir, sem mun segja frá þessum atburði ásamt Agnari Jónssyni safnverði á Borgarsögusafni Reykjavíkur – Sjóminjasafni. Guðrún man eftir því þegar faðir hennar kom kolsvartur og kaldur heim eftir langa nótt í olíumenguðum sjónum sem oft náði honum upp að hálsi og getur gefið persónulega sýn á þennan atburð.
Strand tundurspillisins Skeena verður umfjöllunarefni næstu þriðjudagsgöngu í Viðey 24. júní næstkomandi. Einar Sigurðsson, skipstjóri á Aðalbjörg RE 5, vann mikla hetjudáð þegar hann fór fyrir hópi breskra hermanna á bandarískum landgöngupramma út í Viðey og stjórnaði björgun á 198 manns úr áhöfninni. Ofsaveður gekk á sem gerði björgunarstarf erfitt, sjórinn gékk látlaust yfir skipsflakið, stormur og kuldi nísti í niðarmyrkri.
Dóttir skipstjórans sjálfs, Guðrún Einarsdóttir, mun segja göngugestum í Viðey frá þessum viðburði ásamt Agnari Jónssyni sem er safnvörður á Borgarsögusafni Reykjavíkur – Sjóminjasafni. Guðrún Einarsdóttir var 8 ára þegar atburðurinn átti sér stað og man því eftir pabba sínum þegar hann kom kolsvartur heim eftir nóttina í olíumenguðum sjónum. Hún heyrði söguna frá fyrstu hendi og það verður áhugavert að hlýða á frásögn hennar.
Í sumar eru aukaferðir á þriðjudagskvöldum til Viðeyjar frá Skarfabakka kl. 18.15 og 19.15. Kaffihúsið í Viðeyjarstofu er opið þessi kvöld og upplagt að njóta kvöldverðar í Viðey áður en leiðsögn byrjar.
Gangan hefst kl. 19.30 við Viðeyjarstofu og tekur eina og hálfa til tvær klukkustundir.
Að göngu lokinni er upplagt að tylla sér niður í Viðeyjarstofu og fá sér hressingu áður en haldið er heim á leið en síðasta ferjan siglir frá Viðey um kl. 22.00.
Gjald í ferjuna fram og til baka er 1.100 kr. fyrir fullorðna og 550 kr. fyrir börn 7–15 ára í fylgd fullorðinna. Frítt er fyrir 6 ára og yngri. Leiðsögnin er ókeypis og öllum opin.
Við minnum á að handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og í Viðeyjarstofu og handhafar Gestakorts Reykjavíkur fá fría siglingu.