Skipsskaðaganga í Viðey

Mannlíf Menning og listir

""

Mjög forvitnileg þriðjudagsganga verður annað kvöld í Viðey kl. 19.30  sem fjallar um strand kanadíska tundurspillisins Skeena og hetjulega framgöngu íslensks skipstjóra sem stjórnaði björgun á 198 mönnum úr áhöfninni. Á þeim tíma er slysið varð hvíldi mikil leynd yfir því en það var hernaðarleyndarmál. Það er dóttir skipstjórans, Guðrún Einarsdóttir, sem mun segja frá þessum atburði ásamt Agnari Jónssyni safnverði á Borgarsögusafni Reykjavíkur – Sjóminjasafni. Guðrún  man eftir því þegar faðir hennar kom kolsvartur og kaldur heim eftir langa nótt í olíumenguðum sjónum sem oft náði honum upp að hálsi og getur gefið persónulega sýn á þennan atburð.

Strand tundurspillisins Skeena verður umfjöllunarefni næstu þriðjudagsgöngu í Viðey 24. júní næstkomandi. Einar Sigurðsson, skipstjóri á Aðalbjörg RE 5, vann mikla hetjudáð þegar hann fór fyrir hópi breskra hermanna á bandarískum landgöngupramma út í Viðey og stjórnaði björgun á 198 manns úr áhöfninni. Ofsaveður gekk á sem gerði björgunarstarf erfitt, sjórinn gékk látlaust yfir skipsflakið, stormur og kuldi nísti í niðarmyrkri.

Dóttir skipstjórans sjálfs, Guðrún Einarsdóttir, mun segja göngugestum í Viðey frá þessum viðburði ásamt Agnari Jónssyni sem er safnvörður á Borgarsögusafni Reykjavíkur – Sjóminjasafni. Guðrún Einarsdóttir var 8 ára þegar atburðurinn átti sér stað og man því eftir pabba sínum þegar hann kom kolsvartur heim eftir nóttina í olíumenguðum sjónum. Hún heyrði söguna frá fyrstu hendi og það verður áhugavert að hlýða á frásögn hennar.

Í sumar eru auka­ferðir á þriðju­dags­kvöldum til Viðeyjar frá Skarfabakka kl. 18.15 og 19.15. Kaffihúsið í Viðeyjarstofu er opið þessi kvöld og upp­lagt að njóta kvöld­verðar í Viðey áður en leið­sögn byrjar.

Gangan hefst kl. 19.30 við Viðeyjarstofu og tekur eina og hálfa til tvær klukkustundir.

Að göngu lok­inni er upp­lagt að tylla sér niður í Viðeyjarstofu og fá sér hress­ingu áður en haldið er heim á leið en síð­asta ferjan siglir frá Viðey um kl. 22.00.

Gjald í ferj­una fram og til baka er 1.100 kr. fyrir full­orðna og 550 kr. fyrir börn 7–15 ára í fylgd full­orð­inna. Frítt er fyrir 6 ára og yngri. Leiðsögnin er ókeypis og öllum opin.

Við minnum á að hand­hafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og í Viðeyjarstofu og hand­hafar Gestakorts Reykjavíkur fá fría siglingu.