Tendrun síðasta ljósaviðburðar Vetrarhátíðar fer fram í kvöld, miðvikudagskvöldið 12. febrúar. Skæruliðarnir í Guerrilla Lighting munu lýsa upp skammdegið með „árásum“ á illa lýst mannvirki í Breiðholti. Skæruliðarnir hafa valið nokkra staði í Efra Breiðholti sem þau munu umbreyta með ljósum.
Hver „ljósaárás“ stendur aðeins yfir í nokkrar mínútur og því mikilvægt að vera vel vakandi til að missa ekki af sjónarspilinu. Skæruliðarnir leiða áhorfendur á milli staða og bjóða upp á rjúkandi kakó eftir gönguna. Skæruliðahópurinn samanstendur af útskrifuðum nemendum og fyrsta árs nemenda í lýsingarhönnun í Tækniskólanum auk sjálfboðaliðum frá félagsmiðstöðvum í Breiðholti.
Ljósaárásirnar hefjast við inngang Fellaskóla í Efra Breiðholti í kvöld kl. 20.
Komdu og leiktu þér með okkur!