SÁTTardagur í Seljaskóla

Skóli og frístund Mannlíf

""

Hefðbundið skólastarf var brotið upp í Seljaskóla í dag og unnu allir nemendur þess í stað saman að því að leysa ýmis verkefni í anda einkunnarorða skólans; Samvinnu – Ábyrgðar – Trausts – Tillitssemi (SÁTT). 

Skóladagurinn var að sönnu óvenjulegur í Seljaskóla enda viðfangsefnin margbreytileg og nemendur að vinna með sér yngri og eldri skólafélögum. Börn og unglingar voru að púsla saman, poppa yfir eldi, smíða, búa til myndlistarverk og fara í ýmsa skemmtilega leiki. 

Sáttardagur hefur verið haldinn árlega í Seljaskóla nokkur undanfarin ár og varð hann til í framhaldi af því að PBS- hegðunarstjórnunarkerfið var tekið upp í skólanum. Þetta kerfi er mikilvægur hluti af skólamenningunni og er leitast við að búa nemendum námsumhverfi sem gerir æskilega hegðun árangursríkari og bætir lífsstíl þeirra og lífsgæði.

Í stað PBS er talað um SÁTT-arkerfi í Seljaskóla - og á SÁTTardegi vinna nemendur frá 6-16 ára aldurs að sameiginlegri lausn á ýmsum lífsleikniverkefnum. Yfirskrift dagsins var Í sátt við umhverfið og var skólanum skipt upp í sex svæði sem hvert bar nafn einnar heimsálfu. Í hverri heimsálfu voru fimm starfsstöðvar og skiptu nemendahópar um starfsstöð á 30 mínútna fresti. Öll verkefnin kröfðust samstarfs og virkrar þátttöku nemenda án tillits til aldurs og var almenn ánægja í nemendahópnum með daginn þar sem svo sannarlega reyndi á gildi skólans; samvinnu, ábyrgð, traust og tillitssemi.