Samráð um hönnun Laugavegar á Hönnunarmars

Betri hverfi Umhverfi

""

Á Hönnunarmars, 27. - 29. mars, mun starfsfólk Reykjavíkurborgar taka á móti áhugasömum hugmyndasmiðum um hönnun Laugavegar í Around Iceland Laugavegi 18b frá kl. 10 - 18.

Framundan er endurhönnun götunnar sem verður unnin í góðu samráði við borgarbúa og alla sem láta sig varða þessa helstu menningar-, mannlífs-, og verslunargötu Reykjavíkur. 

Fólki gefst kostur á að fræðast um forsögn endurhönnunarinnar og koma sínum hugmyndum um hönnun götunnar á framfæri. Starfsfólk borgarinnar verður á staðnum og eru áhugasamir hvattir til að koma til þess sínum hugmyndum.

Sjá allar helstu upplýsingar um forsögnina og upplýsingar um götuna sem teknar hafa verið saman á undanförnum árum.





Einnig er hægt að koma hugmyndum á framfæri á tölvupóstfangið laugavegur@reykjavik.is eða skriflega í þjónustuver Reykjavíkurborgar Borgartúni 12 - 14 á skrifstofutíma.