Borgarbókasafn Reykjavíkur stendur fyrir áhugaverðri dagskrá í tilefni af Fjölmenningardegi Reykjavíkur þann 10. maí nk. Kynntar verða tvær nýjar rannsóknir um málefni innflytjenda. Þá munu innflytjendur segja frá reynslu sinni af því að búa á Íslandi og öðru sem þeir vilja koma á framfæri.
Klukkan 17.30 í dag munu afganskar konur kynna mál sitt og menningu.
Í hádeginu á morgun verður kynning á tveimur rannsóknum um málefni hælisleitenda: Fatlaðir hælisleitendur, réttindastaða og félagsleg reynsla sem Guðbjörg Ottósdóttir aðjúnkt og doktorsnemi hefur gert. „Að sitja og bíða“, tækifæri og þátttaka hælisleitenda til að takast á við dagleg viðfangsefni sem eru þeim mikilvæg sem Lilja Ingvarsson, meistaranemi í lýðheilsu, hefur gert.
Á miðvikudag kynnir Dr. Hoda Thabet doktorsritgerð sína „Women at Turning Point“ en hún fjallar um arabískar kvennabókmenntir. Doktorsvörn Hodu í almennri bókmenntafræði frá HÍ fór fram þann 16. apríl sl. Fyrirlesturinn fer fram á ensku.
Fleiri dagskrárliðir eru í boði og má þar nefna:
Kynning á Móðurmáli, samtökum um tvítyngi og umræður um móðurmálskennslu. Þá verður boðið upp á bíósýningu þar sem sýnd verður myndin Fæddur í Absúrdistan. Opnunarmynd kvikmyndahátíðarinnar Evrópa hlær. Myndin segir frá hugsanlegum ruglingi, sem á sér stað á fæðingardeildinni á barni tyrknesks verkafólks, sem stendur til að vísa úr landi, og barni starfsmanns austurríska útlendingaeftirlitsins og þær ófyrirséðu afleiðingar sem þetta hefur í för með sér. Myndin kemur frá Austurríki.