Raddir innflytjenda

Mannlíf Menning og listir

""

Borgarbókasafn Reykjavíkur stendur fyrir áhugaverðri dagskrá í tilefni af Fjölmenningardegi Reykjavíkur þann 10. maí nk. Kynntar verða tvær nýjar rannsóknir um málefni innflytjenda. Þá munu innflytjendur segja frá reynslu sinni af því að búa á Íslandi og öðru sem þeir vilja koma á framfæri.

 

Klukkan 17.30 í dag munu afganskar konur kynna mál sitt og menningu.

Í hádeginu á morgun verður kynning á tveimur rannsóknum um málefni hælisleitenda: Fatlaðir hælisleitendur, réttindastaða og félagsleg reynsla sem Guðbjörg Ottósdóttir aðjúnkt og doktorsnemi hefur gert. „Að sitja og bíða“, tækifæri og þátttaka hælisleitenda til að takast á við dagleg viðfangsefni sem eru þeim mikilvæg sem Lilja Ingvarsson, meistaranemi í lýðheilsu, hefur gert.

Á miðvikudag kynnir Dr. Hoda Thabet doktorsritgerð sína „Women at Turning Point“ en hún fjallar um arabískar kvennabókmenntir. Doktorsvörn Hodu í almennri bókmenntafræði frá HÍ fór fram þann 16. apríl sl. Fyrirlesturinn fer fram á ensku.

Fleiri dagskrárliðir eru í boði  og má þar nefna:

Kynning á Móðurmáli, samtökum um tvítyngi og umræður um móðurmálskennslu.  Þá verður boðið upp á bíósýningu þar sem sýnd verður myndin Fæddur í Absúrdistan.  Opnunarmynd kvikmyndahátíðarinnar Evrópa hlær. Myndin segir frá hugsanlegum ruglingi, sem á sér stað á fæðingardeildinni á barni tyrknesks verkafólks, sem stendur til að vísa úr landi, og barni starfsmanns austurríska  útlendingaeftirlitsins og þær ófyrirséðu afleiðingar sem þetta hefur í för með sér. Myndin kemur frá Austurríki.

Dagskrá Borgarbókasafnsins.