PISA – niðurstöður sýna styrkleika reykvískra skóla

Skóli og frístund

""

Í bókun fulltrúa í skóla- og frístundaráði þann 19. febrúar segir m.a. að niðurstöður síðustu PISA könnunar leiði í ljós að reykvískt skólakerfi búi yfir miklum styrkleikum í mikilvægum þáttum skólastarfs. 

Þeir sem stóðu að bókuninni voru kjörnir fulltrúar Samfylkingar, Besta flokks og Vinstri grænna og fulltrúar foreldra leikskólabarna, skólastjórnenda í leik- og grunnskólum, forstöðumanna frístundamiðstöðva, grunnskólakennara og starfsfólks leikskóla.

Í henni segir m.a.:

Reykvískir grunnskólar hafa lagt í markvissa vinnu í samstarfi við hvern annan, og utanaðkomandi ráðgjafa við að auka fagmennsku sína á sama tíma og sjónum er stöðugt beint að líðan, virkni og velferð nemenda. Afar mikilvægt er að sveitarfélög og Kennarasambandið nái góðum samningum til framtíðar um bætt kjör kennara og sátt um starfsaðstæður og skipulag skólastarfs.



Meðaltal þeirra reykvísku skóla sem bestum árangri ná í PISA könnuninni  er til jafns við niðurstöður í þeim löndum sem verma efstu sætin í PISA. Niðurstöður Reykjavíkur í heild hvað snertir PISA greinarnar hafa verið stöðugar undanfarin ár og eru sambærilegar við niðurstöður sveitarfélaga af svipaðri stærð á Norðurlöndunum.



Mikill meirihluti mælinga á virkni, vellíðan og árangri nemenda í lykilfögum hafa sýnt fram á jákvæða þróun. Fyrir það ber að þakka fagfólki og stjórnendum skóla og frístundamiðstöðva sem vinna hvern dag að því að efla nám, virkni og vellíðan barna og ungmenna.



Fulltrúar í skóla- og frístundaráði voru einnig sammála um að mikil gerjun væri nú í fagstarfi sem miði að því að efla læsi barna allt frá upphafi leikskólagöngunnar, s.s. með læsis- og lestrarstefnum fyrir fyrstu skólastigin. Þá segir í bókunni að PISA-rannsóknin ávarpi ekki helstu styrkleika íslenskra skóla sem er áhersla á list- og verkgreinar og þar með skapandi hugsun.