Nýjar íbúðir í Reykjavík

Umhverfi Skipulagsmál

""

Hvar verða byggðar nýjar íbúðir í Reykjavík?  Svör við þessari spurningu er viðfangsefni kynningarfunda borgarstjóra sem haldnir verða um miðja næstu viku í Ráðhúsi Reykjavíkur. Samhliða kynningarfundunum verður opnuð sýning um sama efni. 

Í Reykjavík er áætlað að byggðar verði um 5.000 nýjar íbúðir á næstu fjórum árum. Framkvæmdir eru ýmist hafnar eða á teikniborðinu. Á sýningu og fundunum verður sagt frá fyrirætlunum fyrirtækja, stofnana og Reykjavíkurborgar:  Hvar verða íbúðirnar, hvenær verða þær tilbúnar og hver er að byggja þær? 

Kynningarfundir borgarstjóra um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík verða í Ráðhúsi Reykjavíkur:

  • miðvikudaginn 12. nóvember kl. 8.30-10.00 og
  • fimmtudaginn 13. nóvember kl. 17.00-18.30.

Allir eru velkomnir á fundina og sýninguna sem opnar á miðvikudagmorgni og stendur til 19. nóvember.  Það er skrifstofa eigna og atvinnuþróunar Reykjavíkurborgar sem hefur veg og vanda að undirbúningi funda og sýningar.

Nánari upplýsingar er að finna á vefsidunni www.reykjavik.is/ibudir en þar verða nánari upplýsingar gerðar aðgengilegar. Útbúin verða nokkur kynningarmyndbönd um einstök uppbyggingarsvæði og byggingarreiti í borginni. 

Skoða upplýsingasíðu:  www.reykjavik.is/ibudir