Ný fræðsluskilti um friðlýstar jarðminjar

Umhverfi

""

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur hefur látið hanna, smíða og setja upp fræðsluskilti um þrjú friðlýst náttúruvætti í landi Reykjavíkur, Fossvogsbakka, Háubakka og Laugarás. Náttúruvætti er einn flokkur friðlýstra náttúruminja og eru skilgreind sem einstök náttúrufyrirbæri, jarðmyndanir eða lífræn fyrirbæri, sem skera sig úr umhverfinu og er ástæða til að varðveita vegna fegurðar, fágætis, stöðu í landslagi, vísindalegs gildis eða öðrum sambærilegum ástæðum.

Fossvogsbakkar eru innst í Fossvogi og fylgja strandlínunni um 2 km í vesturátt að Nauthólsvík. Á Fossvogsbökkum eru jarðminjar en í bökkunum eru sjávarsetlög frá lok ísaldar fyrir 11.000 árum. Í setlögunum er að finna ýmsa steingervinga, einkum skeljar lindýra. Þá er jökulset í lögunum sem gefa upplýsingar um sögu jökulhörfunar á svæðinu.  Fossvogsbakkar voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1999.



Háubakkar er setlagasyrpa í Elliðaárvogi þar sem er að finna sjávar- og þurrlendissetlög sem mynduðust á löngu tímabili fyrir 100-300 þúsund árum. Í setlögunum eru steingervingar, einkum skeljar en einnig plöntusteingervingar í formi surtarbrands sem mynduðust á hlýskeiði síðustu ísaldar. Háubakkar voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1983.



Laugarás í Langholtshverfi var friðlýstur sem náttúruvætti árið 1982 vegna áhugaverðra jarðminja, einkum jökulsorfins grágrýtis og ummerkja um forna sjávarstöðu. Við lok ísaldar hækkaði sjávarborð til muna þegar jöklar bráðnuðu og var Laugarás einn af fáum stöðum á núverandi landsvæði Reykjavíkur sem var ekki að fullu neðansjávar þegar sjávarstaðan var sem hæst en þá var hún um 45 metrum hærri en hún er í dag. Aðeins efsti hluti Laugaráss stóð upp úr þannig að hann var lítið meira en sker. Ummerki um þetta má sjá á stórgrýti nálægt efsta punkti sem er lábarið af öldugangi.

Fræðsluskiltin eru öll staðsett nálægt gönguleiðum. Við Fossvogsbakka eru skiltin tvö, annað í vesturenda friðlýsta svæðisins nálægt  Nauthólsvík og hitt í eystri hlutanum nálægt botni Fossvogs. Hönnuður skiltanna og höfundur ljósmynda er Árni Tryggvason.

Þá má geta þess að Umhverfisstofnun hefur sett upp fræðsluskilti um sprengigíginn Eldborg í Bláfjöllum sem er fjórða náttúruvættið í landi Reykjavíkur og er skiltið staðsett við Bláfjallaveg við göngustíginn að gígnum.

Nánari upplýsingar um náttúruvættin:

http://reykjavik.is/stadir/fossvogsbakkar

http://reykjavik.is/stadir/haubakkar

http://reykjavik.is/stadir/laugaras