Menntun núna hleypt af stokkunum

Velferð Skóli og frístund

""

Föstudaginn 14. mars klukkan 15:00 munu þeir Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra og Jón Gnarr borgarstjóri skrifa undir samstarfssamning um verkefnið Menntun núna í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Af þessu tilefni flytja menntamálaráðherra og borgarstjóri stutt ávörp ásamt fulltrúum verkefnisstjórnar og nemenda. Allir eru hjartanlega velkomnir á opnunina.

Menntun núna er tilraunaverkefni menntamálaráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og aðila vinnumarkaðarins sem hefur það að markmiði að auka ráðgjöf og stuðning við menntun í Breiðholti. Verkefnið verður staðsett í Gerðubergi.

 Nánari upplýsingar um verkefnið má nálgast á vefsíðunni http://reykjavik.is/menntun-nuna.