Menningardagar Árbæjar verða haldnir hátíðlegir helgina 5. - 7. desember nk.
Fjölskyldan verður í fyrirúmi með söng, jólamarkaði, jólatré og jólasveinum!
Menningardagar Árbæjar verða haldnir hátíðlegir helgina 5. - 7. desember nk.
Fjölskyldan verður í fyrirúmi með söng, jólamarkaði, jólatré, jólasveinum og aðventuhátíð! Sem fyrr hefur hverfisráð haft frumkvæði að Menningardögum Árbæjar og fengið til liðs við sig fjölmarga samstarfsaðila í Árbæ.
Ágæti Árbæingur og/eða velunnari! Taktu endilega með þér ömmu, afa, mömmu og pabba...börn en helst ekki bíl :)
Dagskrá dagana er sem hér segir:
Dagskrá Menningardaga Árbæjar 5. – 7. desember 2014
Föstudagur 5. des
Félagsmiðstöðin Hraunbæ 105
kl. 11:30 Jólahlaðborð notendaráðs félagsstarfsins
Laugardagur 6. des
Árbæjarlaug
kl. 9:00 – 12:00 Frítt í sund
kl. 10:30 – 11:30 Pottaspjall Hverfisráðs Árbæjar
- Kaffi, kleinur og piparkökur í boði Árbæjarlaugar
Árbæjarskóli
kl. 11:00 – 14:00 jólaföndur foreldrafélags Árbæjarskóla
Ársel
kl. 13:30 – 16:00 Jólamarkaður í Árseli
- Handverk til sölu
- Heimabakaðar kleinur og ástarpungar
- Ungmennaráð Árbæjar og Grafarholts með veitingasölu
- Fjallkonan – beint frá býli með bás
kl. 15:00 Rumpa Sakornrum syngur nokkur lög
Árbæjartorg
kl. 13:50 Jólatendrunarbingó …Hver kveikir á Árbæjartrénu í ár??!
kl. 14:00 Kveikt verður á Árbæjartrénu
- Kór Árbæjarkirkju syngur
- Lúðrasveit Árbæjar og Breiðholts spilar jólalög
- Jólasveinar mæta með góðgæti í poka
Árbæjarkirkja
- Jólakort og jólaservéttur til sölu á vegum Kirkjukórs Árbæjarkirkju
kl. 14:30 Kirkjukór Árbæjarkirkju syngur létt jólalög
kl. 15:00 – 15:30 Upplestur í boði Ársafns
- Sóla sögukona les úr bókinni Sóla og sólin..sem Ólöf Sverrisdóttir samdi um hana..
og Sigurður Jón les eigin ljóð.
kl. 15:30 Hljómsveitin Spaðar
Fylkishöllin
kl. 16:00 – 17:15
- Fylkir1 – KA/Þór 3 fl. í 1. deild – Handbolti kvenna
Sunnudagur 7. des
Árbæjarsafn
13:00 – 17:00 Bráðum koma blessuð jólin – Vegleg hátíðardagskrá
Skyggnst verður inn í mannlífið á Íslandi á öldum áður um allt Árbæjarsafn. Fróðleikur fyrir alla fjölskylduna.
15:00 Torgið – jólatréskemmtun með harmóníkuleik.
Nánari upplýsingar á heimasíðunni - www.minjasafnreykjavikur.is/
Fylkishöllin
Kl. 13:00 – 16:00 Íslandsmótið í innanhúss fótbolta
Aðventa í Árbæjarkirkju
kl. 11:00 Fjölskylduguðsþjónusta, Betlehemkertið tendrað
- Möguleikhúsið flytur Jólaleikritið „Smíði jólasveinana“
kl. 20:00 Aðventukvöld
- Kirkjukórinn og Barnakór Árbæjarskóla syngur jólalög, einsöngvari Diddú