Fjölbreyttum trjágróðri fylgir fjölbreytt smádýralíf sem getur verið skaðlegt plöntum.
Sunnudaginn 29. júní kl. 12 mun Guðmundur Halldórsson skordýrafræðingur leiða göngu um Grasagarðinn þar sem fjallað verður um meindýr á trjágróðri, varnir og forvarnir. Þetta er fróðleg ganga sem allir garðeigendur geta haft gagn af.
Gangan hefst við aðalinnganginn. Verið velkomin í Grasagarðinn.