Margs að gæta um áramótin

Umhverfi Heilbrigðiseftirlit

""

Innflutningur á flugeldum fyrir áramótin núna er 100 tonnum meiri en í fyrra eða 502 tonn. Búist er við slyddu og því ekki líklegt að svifryksmengun verði mikil en hávaðinn er sá sami. Borgarbúar eru hvattir til að huga vel að gæludýrum sínum, forðast hávaðamengun og fara með flugeldarusl á endurvinnslustöðvar.

Svifryk fór átta sinnum yfir sólarhrings-heilsuverndarmörkin á árinu 2014. Sólarhringsstyrkur svifryks við Grensásveg var langt undir mörkum á fyrsta degi þessa árs eða 17,9 míkrógrömm á rúmmetra. Heilsuverndarmörkin á sólarhring eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Um áramótin er búist við hægri breytilegri átt,  slyddu og hitastigi um frostmark. Ekki eru miklar líkur á svifryksmengun á nýársnótt eins og veðurspáin lítur út nú.

Hægt er að fylgjast með styrk svifryks á www.reykjavik.is/loftgaedi en þar má sjá staðsetningu loftgæðamælistöðva í Reykjavík. Miðað er við mælistöðina á Grensásvegi þegar hugað er að loftgæðum um áramót. Farstöðvar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur eru að þessu sinni staðsettar annars vegar við Lagargötu 2 við Mýrargötu og hins vegar í Grafarvoginum við Völundarhús 1.

Yfir 500 tonn af flugeldum

Heildarinnflutningur á flugeldum er að aukast aftur og er um 502 tonn að þessu sinni, samkvæmt upplýsingum frá Oddi Ólafssyni varðstjóra hjá Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu. Árið 2013 voru 406 tonn flutt til landsins, árið 2012 voru 648 tonn  og árið 2011 575 tonn. Leyfilegt er að selja afganga af flugeldum sem fluttir voru inn 2012 og 2013.

Flugeldum fylgir rusl

Hreinsun borgarlandsins er kostnaðarsöm og eru borgarbúar því eindregið hvattir til að láta ekki sitt eftir liggja þegar gamla árið er kvatt og því nýja fagnað með flugeldum. Mikið magn flugeldaleifa fellur til og þarf að safna þeim saman og skila á endurvinnslustöðvar Sorpu. Púður er einungis 10% af heildarþyngd flugelda, restin er aðallega pappi og leir. Slíkur pappír hentar alls ekki til endurvinnslu. Ósprungnum flugeldum skal skila í spilliefnagáma á endurvinnslustöðvum Sorpu.

Hávaði

Hávaði vegna flugelda verður oft mikill. Foreldrar ættu að gæta að börnum sínum því þau eru viðkvæmari en fullorðnir fyrir hávaða og dýraeigendur að dýrum sínum. Sum dýr geta orðið hrædd þegar flugeldar eru sprengdir í borginni. Æskilegt er að safnast saman fjarri húsum og sprengja á opnum svæðum. Fólk sem er viðkvæmt fyrir svifryki og hávaða ætti að vera inni þegar mest gengur á um miðnætti og loka gluggum.

Brennur

Söfnun í þær tíu áramótabrennur sem verða í Reykjavík hófst 29. desember og kemur efnið meðal annars frá fyrirtækjum. Einungis hreint timbur má fara á brennurnar og er bannað að setja þar unnið timbur, plast og gúmmí. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur eftirlit með brennunum ásamt Lögreglunni og Slökkviliðinu á Höfðuborgarsvæðinu. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur jafnframt eftirlit með hreinsun á brennustað.

Tenglar:

Upplýsingar um styrk svifryks í Reykjavík

Áramótabrennur í Reykjavík – kort 

Endurvinnslustöðvar Sorpu