Manstu? Afmælissýning Borgarskjalasafns

Mannlíf Menning og listir

""

Í dag miðvikudaginn 3. september opnar sýningin MANSTU? í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Sýningin er samstarfsverkefni Borgarskjalasafns Reykjavíkur og Guðrúnar Sigríðar Haraldsdóttir hönnuðar og myndlistamanns og sett upp í tilefni af 60 ára afmæli safnsins.

Á sýningunni er varpað upp svipmyndum af þeim ríka safnkosti sem Borgarskjalasafn varðveitir með áherslu á síðastliðin 60 ár frá því safnið var stofnað. Sýnd verða skjöl bæði frá einstaklingum, Reykjavíkurborg og af prentuðu efni tengdu Reykvíkingum sem líklegt er að kveiki minningar hjá mörgum borgarbúum. Safnið varðveitir skjöl sem tengjast lífi flestra Reykvíkinga á einn eða annan hátt.

Hluti af sýningunni er innsetning Guðrúnar Sigríðar „Bönd“, sem er byggð á efni safnsins ásamt nýju efni sem hún hefur safnað sérstaklega fyrir verkið. Innsetningin er unnin með blandaðri tækni með efni og aðferð sem Guðrún Sigríður hefur þróað í verkum sínum á síðastliðnum árum. „Bönd“ eins og mörg verk Guðrúnar Sigríðar er leit að því sem sameinar okkur – samnefnara samfélags-sálarinnar og byggist á þörf okkar til að skipuleggja, raða og flokka tilvist okkar og umhverfi. Einmitt þessi atriði skírskota sérstaklega til starfsemi Borgarskjalarsafns sem byggir á söfnun, varðveislu og framsetningu efnis.

Borgarskjalasafn var stofnað 7. október árið 1954 og er eitt af héraðsskjalasöfnum landsins. Það er stærsta skjalasafn landsins fyrir utan Þjóðskjalasafn Íslands með hátt í 10 þúsund hillumetra af skjölum. Safnið hefur dafnað frá því að vera með einum starfsmanni upp í að vera í dag með sjö fasta starfsmenn og farið úr því að vera í einu herbergi á bæjarskrifstofunum í að vera í um tvö þúsund fermetra húsnæði.

Meginhlutverk Borgarskjalasafns er að varðveita skjöl Reykjavíkurborgar en það tekur einnig við skjölum frá einstaklingum, félagasamtökum og fyrirtækjum í Reykjavík.  Slík skjöl gefa fjölbreyttari mynd af mannlífi í Reykjavík og lífi Reykvíkinga, eins og sýnt er á sýningunni. 

Skjalasöfn eru mikilvæg, ekki einungis til að varðveita skjölin, heldur að gera þau aðgengileg almenningi og fræðimönnum, á lestrarsal og nú í sívaxandi mæli á vef. Hægt er að leit til Borgarskjalasafns með fyrirspurnir og til að fá að lesa og fá afrit að skjölum, til að fræðast betur um persónulega hagi sína eða sögu nánasta umhverfi.

Vaxandi hlutverk Borgarskjalasafn er fræðsla og ráðgjöf við afhendingarskylda aðila og eftirlit með skjalavörslu þeirra eins og kemur fram í nýsamþykktum lögum um opinber skjalasöfn. Krefjandi verkefni framundan er að undirbúa að rafræna langtímavarðveislu.

Komdu og rifjaðu upp gamlar minningar á sýningunni MANSTU? í Tjarnarsal Ráðhússs Reykjavíkur. Sýning er stendur til 21. september og er opin kl. 8-19 virka daga og helgar kl. 12-18. Allir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis.