Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar auglýsir eftir umsóknum um styrki. Markmið með styrkjum mannréttindaráðs er að styðja við hvers kyns sjálfsprottið starf, starfsemi frjálsra félagasamtaka og framtak einstaklinga á sviði mannréttinda. Einnig að styrkja jafnræði borgarbúa, fjölbreytilegra mannlíf og að sama skapi standa vörð um grundvallarmannréttindi borgarbúa.
Hér má nálgast reglur um styrkveitingar mannréttindaráðs og umsóknareyðublað. Umsóknarfrestur er til 25. apríl n.k. og eru einungis teknar til greina umsóknir sem berast innan tilskilins frests og uppfylla þær kröfur sem reglur Reykjavíkurborgar kveða á um.
Við mat á umsóknum munu reglur Reykjavíkurborgar um styrki og mannréttindastefna Reykjavíkurborgar vera höfð til hliðsjónar. Viðburðir eða verkefni eru ekki styrkt eftir á. Þá eru styrkir alla jafna hvorki veittir til kaupa á húsnæði né til greiðslu fasteignagjalda.
Umsóknir verða metnar með hliðsjón að eftirfarandi:
- marmiðum sem lýst er og hvort líklegt sé að þeim verði náð
- hvort verk-og tímaáætlun sé raunhæf
- hvort unnt sé að meta framvindu verksins
- hvort skilagreinar og fyrri verkefni sem styrk hafa hlotið uppfylli lágmarkskröfur
- væntanlegum árangri og ávinningi fyrir umrædda starfsemi
- fjárhagsáætlun og greinargerð um aðra fjármögnun sem einnig skal fylgja umsókn
Styrkumsókn felur í sér að umsækjendur undirgangast ákvæði reglna Reykjavíkurborgar um styrki. Gert er ráð fyrir að úthlutun verði lokið í júní 2014.
Fyrirspurnir og óskir um nánari upplýsingar má senda á netfangið mannrettindi@reykjavik.is