Á morgun, fimmtudaginn 22. maí munu malbiksframkvæmdir í Reykjavík hefjast þetta sumarið, ef veður leyfir.
Malbikunarstöðin Höfði hf. mun vinna við malbikun á Logafold nr. 126-150 og Logafold nr. 128-130.
Byrjað verður um klukkan 9 og unnið fram eftir degi. Götukaflinn verður lokaður fyrir alla umferð á meðan framkvæmdum stendur.