Malbikunarframkvæmdir við Logafold

Framkvæmdir Samgöngur

""

Á morgun, fimmtudaginn 22. maí munu malbiksframkvæmdir í Reykjavík hefjast þetta sumarið, ef veður leyfir.

Malbikunarstöðin Höfði hf. mun vinna við malbikun á Logafold nr.  126-150 og Logafold nr. 128-130.

Byrjað verður um klukkan 9 og unnið fram eftir degi.  Götukaflinn verður lokaður fyrir alla umferð á meðan framkvæmdum stendur.