Í söluturninum á Lækjartorgi er verið að selja sólarknúið ljós sem heitir Little Sun. Um er að ræða lítinn lampa sem þeir Ólafur Elíasson listamaður og Frederik Ottesen verkfræðingur hafa hannað í sameiningu.
Lampinn Little Sun er alfarið knúinn af sólarorku. Verkefninu er ætlað að varpa ljósi á þá staðreynd að 1.2 milljarðar manns eru án rafmagns í heiminum í dag og sólarorka er ákjósanleg leið til að binda enda á orkuskort í heiminum.
Stofnað hefur verið fyrirtæki um verkefnið og er meginmarkmiðið að útvega eins mörgum manneskjum um allan heim, hreina sólarknúna lýsingu í rafmagnssnauðum samfélögum. Jafnframt er hugsunin sú að þjálfa heimamenn í að stofna lítil fyrirtæki og selja ljósið. Þannig eykst atvinna í fátækari samfélögum sem styrkir um leið hagkerfi þeirra.
Ljósið er nú til sölu víða um heim og er hugsunin sú að með sölu á Little Sun í rafvæddum löndum er hægt að bjóða ljósið á viðráðanlegu verði í löndum þar sem rafvæðing er ekki fyrir hendi. Nú er ljósið til sölu í átta Afríku ríkjum, Zimbabwe, Uganda, Eþíópíu, Kenía, Búrúndí, Senegal, Nígeríu og Suður Afríku. Ljósið er einnig selt í Evrópu, Japan, Ástaralíu, Kanada og Bandaríkjunum.
Ljósið má nota nota í útilegurnni, sem lesljós eða þegar þú þarft að leita í dimmu skoti. Keyptu ljós í söluturninum á Lækjartorgi og styrktu um leið gott verkefni.