Jólamarkaðurinn á Ingólfstorgi var opnaður í dag. Hann verður opinn frá 11. - 14. desember og svo aftur 19. - 23. desember. Sjá nánar á Facebooksíðu Jólamarkaðarins á Ingólfstorgi.
Hinn árlegi Jólamarkaður var opnaður á Ingólfstorgi í dag. Þar verður hægt að kaupa ýmsa matvöru, t.d. kofareykt hangikjöt beint frá býli ásamt ýmsu spennandi handverki.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri opnaði markaðinn en ýmsar kúnstugar verur voru mættar á Ingólfstorg. Þar var t.d. Leppalúði í tískufötum með geitina sína Jónas. Jólasveinninn Hurðaskellir var líka kominn til að skemmta sér og öðrum. Lúðrasveit Austurbæjar lék jólalög og stúlkur úr Graduale Futurae sungu.
Ýmsar uppákomur verða á jólamarkaðnum fram að jólum.