Leitað að safnstjóra

Stjórnsýsla Menning og listir

""

Menningar- og ferðamálasvið hefur auglýst laust til umsóknar stöðu safnstjóra hjá nýju safni í eigu Reykjavíkurborgar, sem mun fela í sér samruna og samþættingu starfsemi Minjasafns Reykjavíkur, Víkurinnar - Sjóminjasafnsins í Reykjavík, Ljósmyndasafns Reykjavíkur og Viðeyjar.

Eitt stærsta safn landsins í mótun

Safnið, sem verður eitt stærsta safn landsins, hefur umsjón með menningarminjum í Reykjavík og ber ábyrgð á söfnun, skráningu, rannsóknum og miðlun á fjölbreyttum safnkosti: munum, húsum, ljósmyndum og minjum tengdum sjómennsku, siglingum, útgerð o.fl. sem eru einkennandi fyrir menningararf borgarinnar og varpar ljósi á sögu hennar og menningu. Það ber jafnframt ábyrgð á skráningu fornleifa, húsa og mannvirkja, rannsóknum og eftirliti þeirra og er ráðgjafi borgaryfirvalda um verndun menningarminja í Reykjavík og um önnur menningarsöguleg verkefni.

Undir safnið munu heyra söfnin og sýningarstaðirnir Árbæjarsafn og Landnámssýningin Reykjavík 871+/-2, ásamt sérsöfnum og safnheildum, Ljósmyndasafn Reykjavíkur í Grófarhúsi, Sjóminjasafnið að Grandagarði 8 og Viðey.

Nútúmaleg og metnaðarfull menningarstofnun

,,Þetta er einstaklega spennandi verkefni fyrir þann sem velst til að leiða nýtt safn“, segir Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs, en vinna við undirbúning samruna áðurnefndra menningarstofnana er komin á fulla ferð. ,,Markmiðið með sameiningunni er að búa til sterkari einingu, bæði faglega og rekstrarlega, og sækja fram eftir margra ára samdrátt í rekstrarumhverfi safnanna í borginni. Við sjáum mikil tækifæri í að móta nútímalega og metnaðarfulla menningarstofnun sem hefur fjölmarga snertifleti við borgarbúa og gesti.“

Umsóknarfrestur rennur út þann 19. janúar nk. og gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf eigi síðar en 15. mars nk. Nánari upplýsingar um starfið má nálgast á starfavef borgarinnar.