Í vikunni hófst tilraunaverkefni í Háteigsskóla sem felst í því að eldri nemendur stjórna leikjum yngri nemenda í frímínútum. Það miðar m.a. að því að uppræta einelti á skólalóðinni.
Þegar kannanir á líðan nemenda eru skoðaðar kemur í ljós að einelti á sér helst stað þar sem lítil stýring er á aðstæðum og enginn fullorðinn sér til. Í frímínútum geta skapast slíkar aðstæður. Einnig eru alltaf einhverjir nemendur sem kunna illa að lesa í félagslegar aðstæður og geta því verið mjög óöruggir í frímínútum.
Leitað var til 9. bekkinga í Háteigsskóla til að leiða þetta verkefni og tóku þeir sérlega vel í það. Þeir ætla að vera tveir og þrír saman í morgunfrímínútum einu sinni í viku og stjórna þar leikjum sem þeim finnast skemmtilegir. Einnig er búið að taka saman lítinn útileikjabanka sem nemendur geta leitað í og lært þannig nýja leiki.
Starfsfólk mun eftir sem áður sinna gæslu á skólalóðinni, en vonandi gerir þetta verkefni frímínúturnar skemmtilegri fyrir alla í Háteigsskóla, alla vega hafa yngri nemendur tekið þessari nýjung afar vel.