Leikskólastjórarnir Sigríður Sigurðardóttir í Hagaborg og Inga Dóra Jónsdóttir í Hálsaskógi voru nýlega kvaddar með viðhöfn á fundi leikskólastjóra, en þær hafa um áratugaskeið unnið í þágu reykvískra barna.
Sigríður og Inga Dóra hafa látið af störfum sem stjórnendur eftir áratuga farsælt starf sem þeim er þakkað af heilum hug, af starfsfélögum og skóla- og frístundasviði.