Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2015 var samþykkt í borgarstjórn í kvöld.
Fjárhagsáætlunin endurspeglar áherslur meirihlutans sem finna má í samstarfssáttmála hans.
Framlög til fæðisgjalda og sérkennslu aukin
Framlag borgarinnar til hráefniskaupa í leik- og grunnskólum hækkar um 56 milljónir króna frá fyrri áætlun til að auka gæði skólamáltíða. Framlög til sérkennslu í leik- og grunnskólum eru einnig aukin um tæpar 48 milljónir króna.
Þá eru 20 milljónir króna lagðar í sérstakt átak til að auka þátttöku í frístundastarfi fyrir börn af erlendum uppruna, fatlaða framhaldsskólanema og börn tekjulágra foreldra sem ekki uppfylla skilyrði um fjárhagsaðstoð. 20 milljónir eru settar í sambærilegt átak fyrir ungmenni 16 ára og eldri sem ekki eru í námi.
Aðgerðir gegn heimilisofbeldi
Ennfremur var samþykkt aukin fjárheimild til mannréttindaskrifstofu upp á tæpar 45 milljónir til samstarfsverkefnis lögreglunnar og borgarinnar í aðgerðum gegn heimilisofbeldi.
Að auki var fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar fyrir árin 2015-2019 samþykkt en samkvæmt henni er fyrirhugað að Félagsbústaðir Reykjavíkur fjárfesti í 500 nýjum íbúðum á næstu fimm árum.
Varfærin fjárhagsáætlun
„Meirihluti Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata hefur nú sitt fyrsta heila starfsár á grundvelli varfærinnar fjárhagsáætlunar þar sem lögð verður áhersla á lífsgæði, grósku og blómlegt borgarlíf,“ segir Dagur B. Egggertsson, borgarstjóri.
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur 2015
Fundargögn borgarstjórnarfundar 2. desember 2014