Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og norsk-íslensk stúlka, Lilja Rán Gunnarsdóttir, kveiktu á jólaljósunum á stóra jólatrénu á Austurvelli í gær. Veðrið var eins jólalegt og hugsast gat, froststilla og snjór yfir öllu. Mikill hátíðablær var yfir samkomunni sem var vel sótt af fjölskyldufólki.
Þetta er í fyrsta sinn sem jólatréð á Austurvelli er íslenskt en Oslóarborg hefur gefið Reykvíkingum tré úr skógum sínum óslitið frá 1951. Oslóartréð brotnaði í aftakaveðri sunnudaginn 30. nóvember sl. og var því brugðið á það ráð að höggva tré úr skóglendi Reykjavíkurborgar við Rauðavatn. Það er því tíu metra hátt íslenskt sitgagrenitré sem prýðir nú Austurvöll.
Cecilie Landsverk, sendiherra Noregs á Íslandi, flutti ávarp við athöfnina en hún bar Reykvíkingum góða kveðju frá Oslóarbúum og Norðmönnum öllum.
Sigríður Thorlacius og Helgi Björnsson fluttu jólalög og jólasveinarnir komu og skemmtu yngri kynslóðinni með skopi og ærslum af betri gerðinni.
Oslóartréð var hins vegar vel nýtt. Í Ráðhúsi Reykjavíkur stendur nú yfir sýningin Jólaverkstæði barnanna. Grenigreinar af Oslóartrénu voru nýttar í skreytingar sýningarinnar og myndarlegur toppurinn sem brotnaði af trénu stendur forkunnarfagur og vel skreyttur á miðju gólfi Tjarnarsalsins.
Jólaverkstæðið verður opið á virkum dögum frá 8.00 til 19.00 og um helgar frá 12.00 til 18.00, til 6. janúar nk.