Kosningasíða Reykjavíkurborgar opnuð

Kosningar Stjórnsýsla

""

Borgarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 31. maí nk. Skrifstofa borgarstjórnar heldur utan um framkvæmd kosninganna fyrir hönd Reykjavíkurborgar. Aðsetur yfirkjörstjórnar Reykjavíkurkjördæmis verður í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Kosningasíða Reykjavíkurborgar hefur nú verið opnuð en þar er að finna hagnýtar upplýsingar fyrir kjósendur og frambjóðendur. 

Á síðunni eru nú meðal annars helstu dagsetningar fram að kjördegi, upplýsingar um staðsetningu kjörstaða, leiðbeiningar fyrir kjósendur sem vilja nýta sér aðstoð við kosningu, myndræn framsetning á ýmsum talnagögnum, nöfn og netföng hjá meðlimum yfirkjörstjórnar og tengiliðum borgarinnar og fleira. 

Síðan verður uppfærð reglulega fram að kosningum. 12. maí munu framboðslistar liggja fyrir og verða þeir þá auglýstir á síðunni. Á kjördag verða kjörsóknartölur birtar á síðunni á eins til tveggja tíma fresti.