Kortlagning á möguleikum í borgarhlutum

Skipulagsmál

""

Hverfisskipulag er nýbreytni í skipulagsmálum í Reykjavík sem nú er unnið að í samráði við borgarbúa. Áfanga í þessari vinnu var náð nú í vikunni þegar verklýsingar um gerð hverfisskipulags í átta borgarhlutum voru samþykktar í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar. Lýsingarnar eru gerðar á forsendum hverfisins og hverfisbúa og eru kortlagning á borgarhlutunum og ótal áhugaverðum möguleikum sem hver þeirra býr yfir. 

Ráðgjafar í átta fagteymum hafa unnið greiningarvinnu fyrir borgarhlutana. Þeir hafa komið auga á hina ýmsu möguleika sem hægt er að skoða og taka afstöðu til í þeirri skipulagsvinnu sem framundan er. Verklýsingarnar varpa því ljósi á þá möguleika sem búa í hverjum borgarhluta fyrir sig. Engar endanlegar tillögur hafa verið gerðar eða mótaðar um sérstaka uppbyggingarreiti í þessari vinnu, enda munu allar slíkar hugmyndir byggjast á samráði og skapandi samtali við borgarbúa.

Fyrsti áfanginn er m.ö.o. verklýsing á núverandi ástandi í hverfinu og þar eru einnig settar fram hugmyndir um það sem velta má upp í eiginlegri skipulagsvinnu. Ef lóðarhafar sjá möguleika á að nýta lóðir sínar betur verður ákveðið í næsta áfanga hvort það verður heimilað. Lýsingarnar fela í sér ábendingar um tækifæri í borgarhlutunum en tillögur verða ekki unnar fyrr en í næsta áfanga vinnunnar.

Nýi Vesturbærinn

Hver borgarhluti skiptist upp í nokkur hverfi og er til dæmis Vesturbænum skipt upp í fjögur hverfi þar sem bent er á möguleg uppbyggingarsvæði sem skoða þarf nánar í næsta áfanga verkefnisins. Nýi Vesturbæinn er eitt þeirra hverfa en hann spannar Mela, Haga, Skjól og Eiðsgranda.

Í verklýsingunum kemur meðal annars fram að svæðið við Vesturbæjarlaug og Melabúð gæti mögulega orðið nýtt miðjutorg hverfisins ef vilji er fyrir hendi, að nýta mætti Hagatorgið betur, endurheimta votlendi við Eiðsgranda og þá er spurt hvort tengja mætti botnlangagötur aftur við gatnanetið og nota tækifæri til þéttingar byggðar á lóðum fjölbýlishúsa.

Nokkrir þættir eiga síðan almennt við um Vesturbæinn eins og að bæta hjóla- og gönguleiðir, tryggja aðgengi að verslun og þjónustu, varðveita og efla náttúrusvæði og standa vörð um byggingararf.

Vandaður undirbúningur

Lýsingarnar eru í raun kortlagning á borgarhlutunum og ótal áhugaverðum möguleikum sem hver þeirra býr yfir, gerðar á forsendum hverfisins og hverfisbúa. Þær eru mikilvægt skref í átt að stórauknu samráði við borgarbúa um skipulag, aukið gagnsæi og sjálfbærni í hverfum Reykjavíkur. Þær skapa öllum færi á að skoða borgarhlutana og taka þátt í mótun þeirra til framtíðar.

Tenglar

Frétt um hverfisskipulag 23. apríl.

Hverfisskipulag.is.