Komið til móts við fatlaða nemendur með fjölbreyttri upplýsingatækni

Velferð Skóli og frístund

""

Skóla- og frístundaráð hefur samþykkt tillögur starfshóps um notkun tölvutækni í námi og kennslu mikið fatlaðra grunnskólanemenda. 

Tillögurnar fela í sér að gerð verði áætlun til nokkurra ára um spjaldtölvuvæðingu nemenda og kennara í Klettaskóla og sérdeilda við grunnskóla. Stefnt verður að því að allir mikið fatlaðir nemendur í sérskólum, sérdeildum og almennum grunnskólum hafi til afnota spjaldtölvu sem fylgi hverjum og einum í skólastarfi, heimanámi og í frístund.



Í tillögum starfshópsins er undirstrikað að ávallt skuli leitast við að nýta þá tölvutækni sem metin er áhrifaríkust fyrir nemendur með fötlun enda er þróunin ör, námsefni breytist hratt og tækninni fleygir fram. Spjaldtölvur, snjalltæki og gagnvirkur tölvubúnaður gagnist vel í námi, kennslu og boðskiptum barna og ungmenna með fötlun, sem og í samstarfi heimila og skóla.



Starfsfólk grunnskóla, þar sem fatlaðir nemendur stunda nám, skuli hafa aðgang að fræðslu um tölvutækni í námi og kennslu og innan hvers grunnskóla og sérskóla verði tækniteymi falin ábyrgð á tölvu- og hugbúnaði vegna fatlaðra nemenda. Þá verður stofnað sérhæft tækniteymi um tölvutækni í námi og kennslu mikið fatlaðra grunnskólanemenda á skóla- og frístundasviði borgarinnar.



Í samþykkt skóla- og frístundaráðs er gert ráð fyrir að tillögunum um endurnýjun tölvubúnaðar verði hrint í framkvæmd á næstu þremur árum.

Sjá tillögurnar og skýrslu starfshópsins.