Klúbburinn Geysir 15 ára

Velferð Mannlíf

""

Fjölmenni var saman komið í húsnæði Klúbbsins Geysis í Skipholti á laugardaginn var en þá var haldið upp á 15 ára afmæli klúbbsins. Boðið var upp á kaffi og kökur, ýmis skemmtiatriði voru í boði og tónlistarmaðurinn Rúnar Þór mætti með gítarinn og tók nokkur lög. 

Það var mikið líf og fjör í húsakynnum klúbbsins á afmælinu, sungið, hlegið og dansað og borðin svignuðu undan tertum og góðgæti sem í boði voru fyrir gesti og gangandi.
 
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri mætti á staðinn, flutti stutta tölu þar sem hann óskaði klúbbnum og félagsmönnum öllum til hamingju með afmælið og færði þeim gjöf. Vigdís Finnbogadóttir fyrrum forseti Íslands er verndari Klúbbsins Geysis og opnaði hún nýja heimasíðu í tilefni afmælisins: http://kgeysir.is/
 
Undirbúningur að stofnun Geysis hófst árið 1997 og var klúbburinn formlega stofnaður haustið 1999. Starfseminn hófst í tveimur litlum herbergjum í Hátúni 10 og fljótlega myndaðist kjarni 10-15 félaga. 
 
Í janúar árið 2000 bauðst klúbbnum 200 fermetra húsnæði á Ægisgötu 7 og var það leigt af Reykjavíkurborg. Í október árið 2001 stóð Kiwanishreyfingin fyrir landssöfnun í þágu geðsjúkra og fékk Geysir 10 milljónir í sinn hlut, það gerði klúbbnum kleift að kaupa húsnæði undir starfsemina í Skipholti 29 í félagi við Hússjóð Öryrkjabandalags Íslands. Um áramótin 2013-2014 voru 443 skráðir félagar í klúbbnum.
 
Félagar og starfsfólk klúbbsins ber sameiginlega ábyrgð á rekstrinum. Klúbburinn byggir starfsemi sína á skipulögðum vinnudegi. Öll starfsemin er eingöngu í þágu klúbbsins til að stækka og efla klúbbhúsasamfélagið. Félagar og starfsfólk skipta með sér verkum og ákveða í sameiningu hvaða störf þarf að inna af hendi. Störf innan hússins eru unnin í eftirfarandi deildum: eldhúsdeild, skrifstofudeild og viðhaldsdeild. Öll vinna félaga innan klúbbsins er unnin í sjálfboðavinnu.