Kínverjar og Lettar með í fyrsta sinn á fjölmenningarþingi

Mannréttindi

""

Hlustað verður á skoðanir og viðhorf innflytjenda á Fjölmenningarþingi Reykjavíkurborgar sem haldið verður í þriðja sinn laugardaginn 15. nóvember. 

Þingið verður haldið í fundarsölum Ráðhúss Reykjavíkur, m.a. borgarstjórnarsal, og hafa um 200 manns skráð sig sem er metþátttaka. Þingið hefst klukkan 10.00 með ávarpi Dags B. Eggertssonar borgarstjóra og lýkur klukkan 15.00.



Um 14.000 innflytjendur búa í Reykjavík og er markmiðið með þinginu er að skapa umræður um málefni þeirra. Til umfjöllunar verða m.a. menntamál, gagnkvæm aðlögun, réttindabarátta innflytjenda, fræðslumál, móttaka nýrra íbúa í Reykjavík og fleira.



Unnið verður í hópum á 11 tungumálum; íslensku, ensku, pólsku, litháísku, rússnesku, tælensku, víetnamísku, kínversku, lettnesku, spænsku og arabísku.



Niðurstöður þingsins verða nýttar í aðgerðaráætlun í verkefninu Fjölmenningarborgir (e. Intercultural Cities) sem er á vegum Evrópuráðsins.



Á þinginu verður einnig kosið í fjölmenningarráð Reykjavíkur og hafa allir skráðir þingfulltrúar kosningarétt. Í ráðinu verða 5 fulltrúar, 3 verða  kosnir og 2  tilnefndir af borgarstjórn.