Innköllun á hvítlauksbrauðum

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur: Innköllun á tveimur gerðum af hvítlauksbrauðum frá Myllunni vegna ómerkts ofnæmis- og óþolsvalds (sinnep). 

Myllan hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla tvær gerðir af hvítalauksbrauðum vegna þess að ekki kemur fram í innihaldslýsingum að vörurnar innihalda sinnep.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki:  Myllan.

Vöruheiti:  Hvítlauksbrauð fín (2 stk. í pakka) og hvítlauksbrauð gróf (2 stk. í pakka).

Best fyrir:  Allar best fyrir dagsetningar.

Framleiðandi:  Myllan, Skeifunni 19, 108 Reykjavík.

Framleiðsluland:  Ísland

Dreifing:  Um land allt.



Sinnep og afurðir úr því eru á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda.  Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla.  Tekið skal fram að vörurnar eru skaðlausar þeim sem ekki eru viðkvæmir fyrir sinnepi eða afurðum úr því. 

Viðskiptavinum er bent á að hægt er að skila vörunum í þeim verslunum þar sem þær voru keyptar eða hjá Myllunni, Skeifunni 19, 108 Reykjavík, milli kl. 8:00 og 16:00 alla virka daga.