Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur: Innköllun á tveimur gerðum af hvítlauksbrauðum frá Myllunni vegna ómerkts ofnæmis- og óþolsvalds (sinnep).
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Myllan.
Vöruheiti: Hvítlauksbrauð fín (2 stk. í pakka) og hvítlauksbrauð gróf (2 stk. í pakka).
Best fyrir: Allar best fyrir dagsetningar.
Framleiðandi: Myllan, Skeifunni 19, 108 Reykjavík.
Framleiðsluland: Ísland
Dreifing: Um land allt.
Sinnep og afurðir úr því eru á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda. Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla. Tekið skal fram að vörurnar eru skaðlausar þeim sem ekki eru viðkvæmir fyrir sinnepi eða afurðum úr því.
Viðskiptavinum er bent á að hægt er að skila vörunum í þeim verslunum þar sem þær voru keyptar eða hjá Myllunni, Skeifunni 19, 108 Reykjavík, milli kl. 8:00 og 16:00 alla virka daga.