Innanríkisráðherra fundar með Fjölmenningarráði Reykjavíkurborgar

Velferð Mannlíf

""

Fulltrúar í Fjölmenningarráði Reykjavíkurborgar fóru á fund með Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra í vikunni. Fjölmenningarráði er ætlað að vera ráðgefandi fyrir mannréttindaráð og aðrar stofnanir Reykjavíkurborgar í málefnum innflytjenda. Óttarr Proppé, þingmaður Bjartrar framtíðar, sem stýrir þingnefnd um heildarendurskoðun útlendingalaga sat einnig fundinn.

Vinna hefur staðið yfir í þó nokkurn tíma í innanríkisráðuneytinu við að auka gæði og einfalda til muna móttöku og meðferð hælisleitenda til þess að gera ferlið mannúðlegra og sinna þeim betur sem á vernd þurfa að halda. Sú vinna tekur mið af framkvæmd í þeim löndum þar sem talið er að góður árangur hafi náðst. Þar eru Norðurlöndin framarlega en Noregur stendur einna fremst.

Að auki hefur ráðherra mælt á Alþingi fyrir frumvarpi um hraðari málsmeðferð, sérstaka áfrýjunarnefnd og umbætur til að tryggja að hægt sé að svara umsóknum um alþjóðlega vernd fyrr en nú er gert og þannig forgangsraða í þágu þeirra sem þurfa helst á vernd að halda.