Hvunndagshetjum boðið til veiða í Elliðaánum í fimmta sinn

Umhverfi Íþróttir og útivist

""

Reykjavíkurborg óskar eftir tilnefningum um hvunndagshetjur sem gætu átt skilið að fá að veiða dagpart í Elliðaánum. Er þetta í fimmta sinn sem óskað er eftir slíkum tilnefningum en fjölmargar hvunndagshetjur hafa notið þess að veiða lax sér að kostnaðarlausu í ánum undanfarin ár.

Borgarstjóri hefur í samráði við meirihluta kjörinna fulltrúa Besta flokksins og Samfylkingar ákveðið að lýsa eftir ábendingum um reykvískar hvunndagshetjur sem gætu átt skilið að fá boð um veiðileyfi í Elliðaánum.

Reykjavíkurborg hefur þrjá daga til  úthlutunar í ánum sem ætlaðir eru hvunndagshetjum.  Dögunum var áður úthlutað til fyrrverandi borgarstjóra, borgarfulltrúa og Orkuveitu Reykjavíkur. Er þetta fimmta árið sem þessi háttur er hafður á en þetta fyrirkomulag var tekið upp sumarið 2010.

Vinsamlegast sendið ábendingar um hvunndagshetjur á netfangið ellidaar@reykjavik.is