Mikið var um dýrðir í Hólabrekkuskóla þegar fertugsafmæli skólans var fagnað.
Um síðustu helgi var haldin hátíð í Hólabrekkuskóla í tilefni af fertugsafmæli skóls. Gamlir og nýir nemendur, foreldrar og starfsfólk heimsóttu skólann og tóku þátt í fjölbreyttri dagskrá. Í tilefni afmælisins var sett upp sýning í skólanum þar sem kenndi ýmsra grasa úr skólastarfinu fyrr og nú en m.a. voru settar upp gamlar myndir af nemendum sem glöddu þá sem komu í heimsókn í gamla skólann sinn.
Afmælisshátíðin hófst með samkomu á sal þar sem flutt voru ávörp og nemendur sýndu dans, léku og sungu, m.a. afmælissönginn. Þá var boðið upp á fjöltefli, andlitsmálun og ýmsa leiki og nýtt listaverk með framlagi allra nemenda og starfsfólks var afhjúpað. Hátíðin þótti takast vel en nemendur skólans höfðu undirbúið hana með ýmsu móti á undanförnum vikum og skemmtu sér því hið besta með foreldrum og vinum.